Vatns- og vindheldir vettlingar sem anda vel fyrir ungbörn og því án þumals. Vettlingarnir eru með Gore-Tex® efni sem veitir lófunum gott viðnám fyrir betra grip ásamt því að vera einangraðir með PrimaLoft®. Vettlingarnir eru með endurskins rendur á handabökunum sem sækja innblástur í íslensku vegastikurnar, sylgju til að festa vettlingana saman og snúrugöng til að þrengja og aðlaga snið.