Alhliða útivistarbuxur með smekk gerðar úr GORE-TEX® WINDSTOPPER® efni sem er einstaklega vindþolið og hefur góða vatnsvörn. Einangraðar með Polartec® Power Fill™ sem gefur góðan hita en er samt létt og meðfærilegt. Tveir utanáliggjandi vasar og einn öryggisvasi um mitti. Rennilásar á skálmum við fald sem gerir buxurnar tilvaldar yfir skíðaskó. Enn fremur er hægt að aðlaga og þrengja buxurnar með smellum á faldi svo hægt er að para buxurnar saman við venjulega skó.