Vatnajökull Softshell buxurnar eru hannaðar til að veita vörn gegn veðri og vindum, gerðar úr Polartec® Power Shield® Pro Softshell efni sem andar vel, teygist á fjóra vegu, gefur vel eftir og er mjúkt viðkomu. Buxurnar eru með sérmótuðu sniði á hnjám fyrir hámarks hreyfigetu, teygju í aftanverðum streng, rennda vasa á hliðum með vatnsheldum rennilásum og innbyggðu og stillanlegu belti í mitti. Þær þola létta úrkomu og auðvelt er að athafna sig í þeim, sem gerir þær fullkomnar fyrir fjölbreytta útivist.