Ullarpeysa úr 100% merino ull, mjúk og hlý með 66°Norður lógói til hliðar að framan. Lógóið sækir innblástur sinn í gamla arfleið, lógó sem hefur verið á vinnufatnaði sjómanna í áraraðir. Peysan er meðhöndluð á sérstakan hátt - þvegin og burstuð svo hún þolir vel að fara á ullarprógram í þvottavél. Náttúrulegur eiginleiki ullar er að tempra líkamshita, draga í sig raka og hrinda frá sér lykt. Vörur úr 100% ull er auðvelt að endurvinna.