Jökla parka er gerð fyrir mikinn kulda og erfiðar aðstæður. Nafn hennar sækir innblástur sinn í stormasömustu staði landsins, jöklana okkar. Ytra lag Jökla er úr hágæða CORDURA® nylon efni sem er einstaklega slitsterkt og endingargott efni með vatnsheldni upp að 9.000mm. Í fyrsta skipti bjóðum við upp á okkar vinsælustu úlpu, Jökla, í vegan útgáfu, en hún hefur umhverfisvæna einangrun sem heldur á þér hita í miklum kulda. Jökla er gerð úr vatnsfráhrindandi efni og saumarnir eru límdir til þess að auka vatnsheldnina. Á hettunni er útvíkkanlegt der og innan í hettunni er kragi sem veitir andlitinu skjól og hlýju frá veðri og vindum. Hægt er að taka kragann af. Úlpan er með fimmtán vasa og endurskin á baki og ermum ásamt snúrugöngum í mitti og faldi til að þrengja og aðlaga snið.