Léttar og vatnsfráhrindandi skelbuxur á börn. Allir saumar eru límdir til að auka vatnsheldnina og auðvelt er að pakka buxunum saman. Endurskins rendur að aftan, rennilás á skálmum, renndir hliðarvasar og teygja í mitti. Buxurnar eru í víðu sniði svo auðvelt er að klæðast þeim yfir annað undirlag eða miðlag.