Chris Burkard, ljósmyndari og náinn samstarfsaðili okkar til margra ára, þekkir íslenskar aðstæður eins og lófann á sér. Hann hefur eytt árum saman í að sigrast á íslenska veðrinu og finna fegurðina í hinu óútreiknanlega. Nú hefur hann unnið með okkur að hönnun sérstakrar fatalínu sem er hönnuð til að gera nákvæmlega það – sama hvað aðstæður bjóða upp á þann daginn. Hengill stuttbuxurnar eru gerðar úr slitsterku efni sem teygist á fjóra vegu og andar vel. Á buxunum eru fjórir vasar - tveir að framan og tveir renndir vasar á lærum sem auðvelt er að nálgast, jafnvel með bakpoka eða klifurbelti. Hengill stuttbuxurnar henta einstaklega vel fyrir krefjandi hreyfingu, eins og klifur eða göngur.